---
title: "Heimalestur - Reviews, Revenue and Downloads in Ireland | Apple App Store"
description: "LESTRARAPPIÐ Við á Skólavefnum bjóðum nú upp á glænýtt app til að bæta árangur og þjálfa nemendur í lestri og lesskilningi. Í appinu er að finna á annað þúsund fjölbreyttra texta sem flokkaðir eru nið"
---

# Heimalestur — Ireland
> Bættu lestrarfærni þína

![Heimalestur App Icon](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/Purple221/v4/87/d8/4d/87d84dff-4052-065e-e22e-c60d527159d5/AppIcon-0-0-1x_U007epad-0-1-85-220.png/434x0w.png)

**Developer:** [Skolavefurinn ehf](https://apptail.io/developer/skolavefurinn-ehf-Gxjf) (Iceland)
**Category:** Education
**Rating:** N/A (0 ratings)
**Price:** Free
**Bundle ID:** com.skolavefurinn.heimalestur
**Store:** Apple App Store
**Country:** Ireland
**Version:** 1.8.11 (released 2026-09-30)
**Original Release:** 2026-02-10
**Languages:** English

**App Store Link:** [Download on Apple App Store](https://apps.apple.com/ie/app/app/id6752253910)
**AppTail Page:** [https://apptail.io/app/heimalestur-JYbA/ireland](https://apptail.io/app/heimalestur-JYbA/ireland)

## Heimalestur Description
LESTRARAPPIÐ
Við á Skólavefnum bjóðum nú upp á glænýtt app til að bæta árangur og þjálfa nemendur í lestri og lesskilningi. Í appinu er að finna á annað þúsund fjölbreyttra texta sem flokkaðir eru niður í níu erfiðleikastig. Appið er einfalt og auðvelt í notkun og hægt er að virkja sérstakan aðgang fyrir foreldra svo þeir geti betur tekið þátt í náminu. Hér er á ferðinni einstök leið fyrir nemendur til að þjálfa sig í lestri og lesskilningi.

HVAR OG HVENÆR SEM ER
Já, nú geta nemendur hvenær sem er og hvar sem er lesið vandaða texta til að þjálfa bæði lestrarfærni og lesskilning. Appið hentar öllum símum og öllum tölvum og er því á margan hátt óháð stað og stund.

STIGSKIPTIR TEXTAR
Eins og áður sagði eru textarnir flokkaðir eftir því hve erfiðir þeir eru. Boðið er upp á níu stig eða þrep sem nemendur geta valið um. Í upphafi prófa nemendur sig áfram til að finna það stig sem hentar þeim best og halda svo ferðinni áfram þaðan.

GÓÐ FYRIRGJÖF
Hverjum texta fylgir einhvers konar verkefni sem sýnir að nemandinn hefur lesið textann. Verkefnin eru misflókin eftir stigum og geta falist í því að raða orðum í rétta röð, velja rétt orð í eyðu, eða svara krossaspurningum úr efninu, svo eitthvað sé nefnt. Nemandi er látinn vita með rauðum kassa ef svar hans er rangt, en ef og þegar hann svarar rétt fær hann viðeigandi verðlaun.

SÉRVALDIR TEXTAR
Textarnir eru fjölbreyttir og innihaldsríkir og hafa mikið fróðleiksgildi, þ.e. þeir fjalla um eitthvað sem skiptir máli og nemendur hafa gaman af að vita. Og innan hvers stigs eru ólíkir textar sem nemendur geta valið úr, allt eftir því á hverju þeir hafa áhuga.

NÝTT EFNI Í HVERRI VIKU
Appið mun bjóða upp á nýtt efni í hverri viku þannig að engin hætta er á að nemandinn ljúki við textana sem eru í boði. Það verður af nógu að taka.

AUÐVELT Í NOTKUN
Appið er einstaklega auðvelt í notkun og leiðin að textunum mjög stutt og aðgengileg. Auðvelt er að sjá hvaða texta nemandinn hefur lesið og leyst verkefnin sem fylgja. Nemandi velur sér texta til að lesa, síðan er smellt á „Hefja lestur“ og eftir lesturinn er smellt á „Ég hef lesið textann“ og þaðan er svo farið í verkefnið sem fylgir textanum.

AÐGANGUR FYRIR FORELDRA
Í appinu er boðið upp sérstakan aðgang fyrir foreldra til að þeir geti stutt við börn sín í ferlinu og fylgst með árangri þeirra og framför. Teljum við slíkt mjög mikilvægt, ekki síst á yngri stigum.

## Heimalestur Screenshots
- [Screenshot 1](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource221/v4/b2/a2/4d/b2a24d01-3ef4-92db-191f-0ae0c078ce8f/IMG_7904__U00281_U0029.png/1284x2778.png)
- [Screenshot 2](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource211/v4/74/36/36/7436368e-908e-6ff7-0a04-b1bd7e8434ba/IMG_7895__U00281_U0029.png/1284x2778.png)
- [Screenshot 3](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource221/v4/c8/a2/b2/c8a2b288-8cc6-4e58-ae96-0ba8227c751d/IMG_7906__U00281_U0029.png/1284x2778.png)
- [Screenshot 4](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource211/v4/69/6f/41/696f419b-5cb9-6722-8f4d-3b85e25ae1c7/IMG_7896__U00281_U0029.png/1284x2778.png)
- [Screenshot 5](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource221/v4/bc/b0/e2/bcb0e201-4d3a-4ec6-a338-ada716386e7a/IMG_7897__U00281_U0029.png/1284x2778.png)
- [Screenshot 6](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource211/v4/81/63/b5/8163b5d1-281a-c98c-4122-2f8a30f696a7/IMG_7900__U00281_U0029.png/1284x2778.png)
- [Screenshot 7](https://is1-ssl.mzstatic.com/image/thumb/PurpleSource221/v4/03/7f/68/037f683e-2145-7c99-62ab-a3d35a454b24/IMG_7902__U00281_U0029.png/1284x2778.png)






## Apps Similar to Heimalestur
- [Evolytes](https://apptail.io/app/evolytes-rjs/ireland)
- [Vala Leikskólastarf](https://apptail.io/app/vala-leikskolastarf-oMac/ireland)
- [Georg og klukkan](https://apptail.io/app/georg-og-klukkan-HEsd/ireland)
- [Vala Leikskóli](https://apptail.io/app/vala-leikskoli-LNWf/ireland)
- [Orðalykill](https://apptail.io/app/ordalykill-pNvk/ireland)
- [Bara tala](https://apptail.io/app/bara-tala-liWm/ireland)
- [Orðarugl](https://apptail.io/app/ordarugl-pvTp/ireland)
- [Læsir](https://apptail.io/app/laesir-DTfq/ireland)
- [GraphoGame lestrarleikur](https://apptail.io/app/graphogame-lestrarleikur-monr/ireland)
- [Lykilorð](https://apptail.io/app/lykilord-xfJt/ireland)


---

## About AppTail

[AppTail](https://apptail.io) is a mobile app intelligence platform providing app analytics, ASO (App Store Optimization) tools, keyword tracking, competitor analysis, revenue estimates, and review monitoring for iOS App Store apps. Track your app's performance, discover ranking keywords, monitor competitors, and analyze market trends.

- [Search Apps](https://apptail.io)
- [Top Charts](https://apptail.io/top-iphone-apps)
- [Sign Up for Full Access](https://app.apptail.io/signup?utm_campaign=ai-crawl&amp;utm_content=footer)

*Data provided by [AppTail](https://apptail.io) - Mobile App Intelligence Platform*
